22.12.2008 | 16:48
Útihlaup kl 20:30 í kvöld sami hringur og seinast??
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 17:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
20.12.2008 | 18:51
leirtjörn á morgun?!
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.12.2008 | 16:31
Leirtjörn um helgina!!
Sæl öllsömul hvað seigiði um að henda nagladekkjunum undir og fara á leirtjörn um helgina það er spáð rosalega fínu veðri. Um að gera að fjölmenna á leirtjörn um helgina!!! commenta hverjir ætla að fara!
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
17.12.2008 | 22:51
Næturhlaupaenduro!
Það var fín mæting á æfingu í kvöld. Alli, Arnór, Árni, Heiðar, Hinrik, Freyr, Jón Bjarni, Össi, Góli, Óli, og undirritaður létu snjókomuna ekki trufla sig og tóku ca 9 km hring á slóðunum ofan við Rauðavatnið. Djös.... rugl, en 15 cm lausasnjór, urð og grjót og kolniðamyrkur bætir hressir og kætir - alla vega flesta - bara gaman :) Framstig, armbeygjur og planki og 20 mín sund + potturinn á eftir kláraði æfinguna algjörlega! Snilldarstemning - takk fyrir kvöldið.
Sjáum svo til með létta æfingu á jóladag á milli matarboða - eða rennsli ef fjallið opnar.
Kv. Keli
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
16.12.2008 | 18:14
Þrekæfing annað kvöld
Æfing #2 verður annað kvöld kl. 18.30 (miðvikudag) við Árbæjarlaugina, stundvíslega! (Stundvíslega þýðir sem sagt - vera mættur fyrir 18.30 :) Útihlaupagalli og sundfötin eins og síðast. Það verður frekar kalt þannig að alvöru hanskar og húfa, ullar/flísnærföt og ullarsokkar eru málið fyrir morgundaginn. Byrjum á léttum hring um hverfið með æfingum hér og þar og endum á 20 mín. sundi + heita pottinum.
Kv. Keli/Össi
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.12.2008 | 09:50
Þrektest - niðurstöður!!
Síðastliðiðnn laugardag stóð liðið fyrir þrekprófi í WorldClass Laugum; er skemmst frá því að segja að mætingin var fín og stemmningin var sérlega góð. Tekið var vel á því! Sérstaklega var tekið hraustlega á róðrarvélinni, meira að segja svo hraustlega að menn héldu ekki niðri morgunmatnum eftir átökin. Þetta heitir að leggja sig fram af lífi og sál og það viljum við sjá, í hverju sem menn gera. Glæsilegt!!
En niðurstöðurnar eru þessar:
Uppstig | Armbeygjur | Sit-ups | Hnébeygjur | 2km róður | Flokkur | |
Jói | 153 | 36 | 82 | 191 | 9,27 | 85KA |
Hinrik | 159 | 39 | 73 | 250 | 8,32 | 85KA |
Gylfi | 140 | 16 | 50 | 156 | 10,35 | 85KA |
Guðfinna | 137 | 16 | 57 | 111 | 9,59 | 85KV |
|
| |||||
Raggi | - | - | 73 | 150 | - | MX1 |
Pétur | 136 | 39 | 68 | 84 | 8,32 | MX1 |
Freyr | 147 | 30 | 57 | 120 | 8,28 | MX1 |
|
| |||||
Aron Arnar | - | 31 | 55 | - | 8,13 | MX2 |
Heiðar | 136 | 35 | 49 | 126 | 8,16 | MX2 |
Össi | 149 | 41 | 80 | 150 | 7,25 | MX2 |
Ásgeir | 173 | 37 | 57 | 109 | 7,52 | MX2 |
Árni | 158 | 57 | 80 | 300 | 8,14 | MX2 |
Arnar Ingi | 145 | 26 | 61 | 63 | 8,13 | MX2 |
Arnór | 146 | 37 | 52 | 100 | 7,49 | MX-U |
Hermann | 171 | 45 | 80 | 97 | 8,15 | MX-U |
Helgi | - | 46 | 60 | - | - | MX-U |
Jón Bjarni | 148 | 25 | 70 | 102 | 8,04 | MX-U |
Karen | 123 | 34 | 68 | 100 | 9,09 | Op kvenna |
Keli | 146 | 34 | 76 | 105 | 7,20 |
|
Óli | 117 | 28 | 71 | 113 | 8,43 |
|
Rétt er að benda á að það eru allir að sýna ágætann árangur, EN þó geta flestir bætt sig í að minsta kosti sumum æfinganna. Ég til að mynda á að ráða við fleiri uppstig, fleiri armbeygjur og á að geta náð miklu betri tíma í róðrinum. Næsta þrektest verður 14.febrúar og set ég mér hér með eftirfarandi markmið: Armbeygjur 40, róður 7mín 30 sekúndur. Ef ég næ þessu ekki þá hafa þeir sem setja sér markmið og ná þeim ótakmarkað skotleyfi á mig!!
Nú reynir á - sendið mér markmið ykkar um bætingu á ogudgeirsson@hotmail.com og ég birti þau hér á vefnum. Svo mæta ALLIR laugardaginn 14.febrúar og standa við stóru orðin - gerum svo eitthvað skemmtilegt saman eftir testið.
Hjólahjóla!!
Óli G.
PS: Muna: 40 og 7,30!!!
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 14:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
13.12.2008 | 17:55
Mæting í Bolöldu á mrg. kl.12!!!!
Það er spáð massaskemmtilegu hjólaveðri á morgun og því er möst að fara út og leika sér í snjónum!! Planið er að hittast í Bolöldu klukkan 12:00. Flott leið til að minnka strengina ef einhverjir verða eftir daginn í dag!! haha:)
kommenta hverjir hafa áhuga
Kveðja #100
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.12.2008 | 21:46
Fín æfing í kvöld - þolpróf á laugardaginn
Það var bara góð mæting í "góða veðrinu" í kvöld. 8 manns mættu við Árbæjarlaugina kl. 18.30 - Ásgeir, Hermann, Jón Bjarni, Anita, Jói, Arnór, Össi og Keli tóku Stífluhring með smá útúrdúr upp í brekkurnar neðan við Breiðholtið, armbeygjur og framstig við laugina og 20 mínútna sund í restina. Árni mætti of seint og hjólaði allan dalinn fram og aftur að leita að okkur en fann okkur ekki fyrr en í pottinum. Næsta æfing verður á miðviku daginnn eftir viku.
Þolprófið verður svo á laugardaginn í World Class í Laugum. Raggi er búinn að sjá til þess að þeir sem eru ekki með kort fá 50% afslátt af skiptinu þannig að við borgum 825. Bara að minnast á að þið séuð í Kawasaki liðinu og að Raggi hafi verið búinn að semja um þennan afslátt.
Þeir sem ætla að mæta eru þessir:
Kl. 9 - Anita, Karen, Heiðar, Arnór, Aron, og Aron Arnars
Kl. 10 - Óli, Jói og Gylfi Þór,Hinrik
Kl. 11 - Össi, Ásgeir, Hermann, Keli, Pétur og Guðfinna
Kl. 12 - Arnar Ingi, Helgi, Freyr, Jón Bjarni
Þolprófið ætti að klárast á ca. klukkutíma en ef einhver þarf að bíða þá er það bara þannig. Ef þið skilduð ekki markmiðablöðin ykkar eftir á mánudaginn þá þurfið þið að koma með þau en Raggi ætlar að spjalla við alla og fara yfir blöðin með hverjum og einum.
Kv. Keli
Íþróttir | Breytt 11.12.2008 kl. 16:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
10.12.2008 | 12:52
Æfing í kvöld!!
Í framhaldi af góðum fundi síðasta mánudag verður haldin sameiginleg æfing í kvöld. Byrjum á að hlaupa úti, syndum svo og endum í pottinum.
Hvar: Mæting framan við Árbæjarlaugina.
Hvenær: Klukkan 18:30 - verið stundvís.
Hvað: Hlaupa hring í Elliðaárdalnum undir leiðsögn Kela. Synda svo 20 mínútur í Árbæjarlaug, potturinn á eftir.
Sjáumst hress klukkan 18:30
PS: Verið er að taka saman lista yfir nöfn og símanúmer keppenda og fylgifiska þeirra. Þeir sem ekki fá hóp-sms í dag en vilja vera á listanum, mæta á æfingar eða fylgjast með starfi liðsins, þurfa að senda Óla G. tölvupóst með nafni, gsm-númeri og tölvupósti ásamt upplýsingum um hvaða keppanda þið tengist EÐA hvernig hjólið þið eruð á og í hvaða flokki þið ætlið að keppa í sumar. ogudgeirsson@hotmail.com
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.12.2008 | 13:25
Sandvík 7.des
Ég(Hinrik#807) og Aron#66 skeltum okkur í Sandvíkina í gær það var rosa stuð tókum free ride um svæðið og svo var æfingahringur þarna hjóluðum í honum á fullu ég var á 125unniminn sem eg var að fá og aron á 250f.Það voru nokkur hjól þarna td.jói kef og fleiri en þetta var frábær dagur en drullu kalt en samt gaman
svo minni ég á team kawasaki fundinn í kvöld klukkan 20
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)