21.12.2007 | 11:33
Tekið á því í gær - næsti tími 2. í jólum kl. 11.30 (ef ekki hjólaveður)
Í gærkvöldi mættu 8 í spinning tímann og enn var nokkurra sárt saknað ... eða þannig. Tókum vel á því fyrir jólasteikina og klárt að sumir verða tilbúnari en aðrir í vor :)
Annars var tekin armbeygjumæling á þriðjudaginn þ.e. "eins margar armbeygjur og þú getur 60 sekúndum" - niðurstöðurnar voru sem hér segir.
Árni | 73 |
Jói | 67 |
Keli | 63 |
Össi | 60 |
Pétur | 49 |
Arnar | 47 |
Kristján | 43 |
Guggi | 40 |
Óli | 36 |
Heiðar | 29 |
Nú er bara að fara að mæta og/eða æfa sig og toppa þetta.
Næsta æfing verður annan í jólum, miðvikudaginn 26. des kl. 11.30 EF EKKI verður hjólaveður! Spáin hljóðar upp á 8 stiga frost og él þannig að það er kannski ólíklegt nema menn ætli á ís.
Jólakveðja, Keli
Athugasemdir
pfff 73 armbeygjur.. eru menn ekkert að æfa neitt eða?
Það verður hjólað annan í jólum!
Aron #66 (IP-tala skráð) 21.12.2007 kl. 23:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.