27.12.2007 | 13:05
Æfing í kvöld kl. 20 - nú þarf að brenna steikunum og súkkulaðinu
Tökum léttan spinningtíma og lyftingaækjahring til að vinna úr mesta sukkinu um helgina.
Hjóluðu annars einhverjir í gær og hvar þá? Bolaalda og Þorlákshöfn voru á kafi í snjó í gær og ekki nema naglafæri.
Kveðja, Keli
Athugasemdir
Ég fór Vetraenduró úr Skúrnum upp á Heiði,Bláfjöll,Jósepsdal og Bolöldu.
Það er komin nettur snjór í bolöldu..og það voru sleðamenn að reyna að nota brautina...en það var bara ekkert undirlag fyrir þá...það vantar smá hláku og frost til að byggja undirlag.
Guggi (IP-tala skráð) 27.12.2007 kl. 15:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.