Rosaleg æfing í kvöld!!!

Keli toppaði sjálfan sig algerlega í kvöld - sagðist hafa lesið eitthvað um einhverjar Semicks-æfingar og lét það bitna á okkur.  Fyrir mína parta er ég búinn að vera og spurning hvort maður meikar það í vinnuna á morgun.

Annars var vel mætt í kvöld.  Maggi Ásmunds slóst í hópinn í kvöld og var hann boðinn velkominn að hætti hússins - pískað út þangað til hann gat ekki staðið nema útá þrjóskuna.  Fínt að fá hann í hópinn, því fleiri því meira gaman.

Svo er bara að fjölmenna næsta mánudag - áfram Kawasaki!!

 

Óli G.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekkert svona, þetta var bara létt og skemmtilegt með smá pústi í restina :) En það var stemning og smá race og þá er þetta bara fj.... gaman. Sjáumst á mánudaginn kl. 20.

Kli

Keli (IP-tala skráð) 28.2.2008 kl. 14:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband