Helgin 8-9 Mars og Team Kawasaki fagnar fyrsta titlinum 2008

Signý Stefánsdóttir tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í Ískrossi um helgina með fullu húsi stiga. Þar með er fyrsti Íslandsmeistaratitillin í húsi hjá “Team Kawasaki” á árinu 2008.

Frábært hjá henni...og nokkuð ljóst að hún og fleiri úr Team Kawasaki eru að bæta sig rosalega núna í vetur.

Annars var töluverður fjöldi af fólki í Þykkvabæ um helgina,og á Laugardeginum var víst alveg geðveikt veður.

Það var líka Vetrar Hardenduro túr í gangi hjá sjálfum mér,ásamt Hauki,Friðjóni og fleirrum á Laugardag,og það er hægt að lesa um þann túr á góðum vef sem Robbi í Toyota heldur úti sem er með slóðina hardenduro.tk 

Það styttist í Páska,og vonandi getum við farið að leggja inn einhver plön með það hvar við ætlum að hjóla þá löngu helgi.

Ég setti inn nokkrar myndir frá Þykkvabæ um helgina sem Heiðar#900 og Stebbi#110 tóku..og lýsa stemmingunni nokkuð vel.

Minni á æfinguna með Team Yamaha á morgun líka...það verður bara gaman.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með titilinn Signý.

Jói #919 (IP-tala skráð) 11.3.2008 kl. 11:43

2 Smámynd: Ólafur H. Guðgeirsson

Já, til hamingju Signý!  Flottur árangur.

Þetta eru frábærar myndir.

Sjáumst svo eiturspræk í kvöld....

Óli G.

Ólafur H. Guðgeirsson, 11.3.2008 kl. 12:17

3 identicon

Það hafa verið unnar gríðarlegar gróðurskemmdir á fjörunum í Þykkvabæ undanfarið.

Eigendur landsins hafa ekki gefið neitt leyfi fyrir allri þessari umferð og eru orðnir langþreytttir á þessum átroðningi.

Eru menn vinsamlegast beðnir að halda sig á öðrum svæðum en Þykkvabæjarfjörum.  

Landeigandi í Þykkvabæ (IP-tala skráð) 16.3.2008 kl. 17:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband