6.5.2008 | 23:54
Sauðárkrókur um helgina
Næsta helgi er Hvítasunnuhelgin - frí á mánudeginum, jjeyyy!
Team Kawasaki stefnir á að fara norður á Sauðárkrók um helgina og æfa í brautinni þar. Tedda kannaði með gistingu á svæðinu og er laus gisting hjá Hestasport - riding.is - sem er með nokkur hús til leigu þarna rétt hjá. Síminn þar er 453-8383.
Tékkið endilega á þessu og drífið ykkur með norður, verður bara gaman!
Athugasemdir
Ég og Bára förum á sunnudagsmorgun og ætlum að hjóla á Króknum sunnudag og mánudag.
Allir á grænu að drífa sig!!!!!
Kv. 100
Árni 100 (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 16:13
Hæ hæ
Ég Tedda og Aníta mætum, ekki spurning :)
Kv
Haukur
Haukur (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 22:41
Ætla einhverjir á Föstudaginn norður?
Ásgeir #277 (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 23:46
ég fer ekki :/ það kom gaur og skoðaði 85 mina og krassaði henni :/ er að reina fa hana borgaða:/ en það geingur ekki vel :/ strakurinn sem ætlaði að kaupa hana og datt var i lifshættu og einkvað svo eg sit uppi með kx 85 i drasli
Arnar Gauti (IP-tala skráð) 8.5.2008 kl. 00:17
Ég ætla að brenna á krókinn á laug kvöld gista og hjóla á sunnudeginum er með pláss í bílnum og gistingu fyrir 2 en vantar ferðafélaga.......
Pétur 35 (IP-tala skráð) 9.5.2008 kl. 01:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.