Aron Ómarsson - okkar maður á MXON

Liðsheild okkar Kawasaki-kvenna og manna hefur vakið athygli í sumar.

Nú er komið að því að standa enn þéttar saman og styðja við bakið á okkar manni á MXON, en það hefur varla farið framhjá neinum að Aron Ómarsson er að fara þangað sem fulltrú Íslands og að sjálfsögðu sem fulltrúi okkar Kawasaki-liðsins.  Þetta kostar alltsaman stórfé og legg ég til að við látum öll einhverja aura af hendi rakna til að létta honum og hans fjölskyldu róðurinn.

Það er nefnilega þannig að margar hendur vinna létt verk, líka þegar kemur að peningamálum; ef allir sem eru á póstlista og SMS-lista Kawasaki-liðsins leggja til að mynda 5.000 kall inná reikninginn hjá Aroni þá er búið að tryggja að hann og hans fjölskylda verða ekki fyrir stórkostlegum peningalegum skakkaföllum vegna þess hvað hann er fjandi góður að hjóla.

Reikningsnúmer:   0142-26-2442
Kennitala:  190388-3449

Koma svo, allir saman nú!!!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband