4.3.2009 | 00:03
Fyrsta æfingin
Þá er fyrsta æfing Motcross Skólans búin, sem gekk mjög vel. Ed Bradley er í heimsókn á Íslandi og það var feikna gaman að sjá hann mæta á æfingu!
Einhverjir sem voru búnir að skrá sig mættu ekki til leiks. Næsta æfing er á fimmtudaginn, og þar sem við erum með 11 manns á biðlista, að þá er síðasti séns á morgun fyrir þá sem mættu ekki að borga og tilkynna að þeir ætli að mæta á fimmtudaginn. Engar undantekningar eru gerðar, hvort sem menn eru góðir vinir okkar eða í græna liðinu. Við verðum að halda prógramminu þéttu og því er þetta bara fyrstur kemur fyrstur fær, við getum ekki verið að hangsa eftir sama liðinu endalaust :)
Sjáumst svo eldhress næsta fimmtudag og muna eftir útifötum ef það er ekki brjálað veður!
Kveðja, Ronni og Össi :D
Athugasemdir
Verð að segja að þett er bara rétt hjá þeim félögum - ég fylgdist með byrjuninni á æfingunni og finnt þetta bara helvíti skemmtilegt; vildi bara að ég væri aðeins yngri og í aðeins betra formi því þetta er greinilega alveg þrælgaman.
Ég myndi hins vegar vilja sjá fleira fólk úr Kawasaki-liðinu taka þátt í þessu - flott hjá þeim sem eru með en þið hin, drífa sig nú upp af rassinum og vera með! Það vakti athygli mína að margir af þeim sem æfa mest mættu líka þarna; Pétur Smára og Ásgeir 277 æfa báðir eins og geðsjúklingar, Hinni og Jón Bjarni á kafi í fótboltaæfingum, Jói í skólahreystiprógrammi og ræktinni, ásamt örugglega fleirum sem ég gleymi. Arnar Ingi leit meira að segja við, með alla þrjá bútana af viðbeinum með sér.....
Hvar eruð þið hin???
Össi og Aron vita alveg hvað þeir eru að gera og hvert þeir vilja fara með þjálfuninni - notið þetta!!!
Ólafur H. Guðgeirsson, 4.3.2009 kl. 08:47
ég er nú alveg búin að vera að mæta...það var bara svo fáránlega mikið að læra heima í gær...i'll be there tomorow:D
anita#31 (IP-tala skráð) 4.3.2009 kl. 10:19
Ég er að vinna á kvöldin núna, en ég get lofað ykkur því að ég er ekki uppí sofa að naga nammi!!!
#100 (IP-tala skráð) 5.3.2009 kl. 00:50
yeah right
aron66.is (IP-tala skráð) 6.3.2009 kl. 12:27
uu þetta með þau hin er að námskeiðið er fullt þannig þau geta ekkert bara komið hihihi eins og á sundæfingarnar þetta er allt annar handleggur er það ekki ? :D
BB (IP-tala skráð) 6.3.2009 kl. 14:21
"Þau hin" geta haft samband við Aron og Össa, og ef nægileg þátttaka fæst þá verður bætt við námskeiðum.
Ólafur H. Guðgeirsson, 6.3.2009 kl. 15:35
hvað veist þú um það Óli?
BB (IP-tala skráð) 6.3.2009 kl. 17:25
Hver ert þú, BB?
Össi og Aron hafa sagt að þeir séu til í að hafa fleiri hópa og spurning um að tala bara þá.
Ólafur H. Guðgeirsson, 6.3.2009 kl. 19:38
Óli ekki vera svona eins og þú vitir allt.
BB (IP-tala skráð) 6.3.2009 kl. 20:22
......ég veit allt....nema hver þú ert, BB!! Segðu hver þú ert svo hægt sé tala við þig eins og alvöru manneskju.
Ólafur H. Guðgeirsson, 6.3.2009 kl. 20:53
Voða húmor í gangi hérna sé ég , giska að það sé aron sem er svona fyndinn en það var ég sem skrifaði fyrstu skilaboðin svo hefur húmoristinn tekið við.. :-)
Bryndís Bára (IP-tala skráð) 7.3.2009 kl. 18:14
BB - Bryndís Bára........hverjum hefði nú svo sem átt að detta ÞAÐ í hug....
Ólafur H. Guðgeirsson, 8.3.2009 kl. 08:58
sáttur með mig maður er alveg búinn að mæta vel
arnor661 (IP-tala skráð) 12.3.2009 kl. 00:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.