Tilkynningar - undirbúningur fyrir Akureyri o.fl.

Ágætu félagar

Fjöldi fólks stefnir norður um helgina til að undirbúa sig fyrir keppnina; má búast við miklu fjöri þar í dag og næstu daga, sérstaklega auðvitað í húsinu hjá Kela.

Raggi ætlar að vera með námskeið í brautinni á Akureyri milli 9:30 og 12:30 á morgun laugardag.  Bendi öllu Kawasaki-fólki fyrir norðan á að nýta sér þetta tækifæri.

Eftir helgina er stefnt á að hafa lokaða æfingu fyrir Team Kawasaki, en eftir þá æfingu verða endanleg lið tilkynnt.  Þar sem liðið hefur úr mörgum flottum hjólurum að velja má búast við mikill keppni á æfingunni og vil ég hvetja sem allra flesta áhugasama Kawasaki-hjólara til að mæta.  Stefnt er á að hittast sem fyrst eftir vinnu, en nánari tímasetning og staðsetning verður tilkynnt síðar.

Sömuleiðis er Nitró með tilboð á göllum fyrir Team Kawasaki, farið þangað og tékkið á málinu.

 

Hjólahjóla
Óli G.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvenær verður þessi æfing???

#807 (IP-tala skráð) 24.5.2009 kl. 21:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband